Stjörnupakki
Stjörnupakki - dýrahringurinn
Stjörnupakki - Óríon
The Star Kit - Twin Star
Hrúturinn
Aries
Hrúturinn er lítið stjörnumerki sem erfitt er að finna. Þrjár björtustu stjörnur þess eru Alfa, Beta og Gamma, en þær þrjár er samt best að sjá gegnum sjónauka.
Nautið
Taurus
Áberandi stjörnumerki nálægt Óríon. Belti Óríons er gott kennileiti til að finna björtustu stjörnuna, Aldebaran, sem skín með rauðum bjarma. Aldebaran er vinstra auga nautsins.
Tvíburarnir
Gemini
Kastor og Pollux voru óaðskiljanlegir tvíburar. Þeir höfðu ólíka hæfileika, annar var frábær hestamaður og hinn ósigrandi hnefaleikakappi. Tvíburarnir eru bjartasta merki dýrahringsins.
Krabbinn
Cancer
Stjärntecknet cancer kallas ofta på svenska för kräftans tecken. Men i äldre zodiaker från medeltiden och framåt i vårt land symboliseras zodiatecknet av en krabba. Som symbol för detta soltecken är krabban mer rättvisande än kräftan. Cancer innehåller bara svaga stjärnor, och du kan knappt se den när himlen är ljus. Cancer är mest känd för sin öppna stjärnhop M 44, som också kallas för Praesepe.
Ljónið
Leo
Eitt af fáum stjörnumerkjum þar sem lögunin og nafnið fara saman. Ekki þarf að teygja ímyndunaraflið langt til að sjá ljónslögunina. Þetta merki á uppruna sinn í Egyptalandi til forna og því er stundum haldið fram að lögun Sfinxins sé komin þaðan.
Meyjan
Virgo
Erfitt er að sjá meyjuna með berum augum; einungis Spíka, bjartasta stjarna hennar, sést án sjónauka. Meyjan er sjötta merki dýrahringsins og næststærsta stjörnumerkið. Talið er að allt að þrjú þúsund stjörnuþokur séu í þessu stjörnumerki, í allt að 70 milljóna ljósára fjarlægð.
Vogin
Libra
Þetta stjörnumerki er við hliðina á sporðdrekanum. Reyndar svo nálægt honum að Forn-Grikkir litu ekki á það sem sérstakt stjörnumerki heldur myndaði það kló sporðdrekans. Það voru Rómverjar sem líktu því við vogarskálar.
Sporðdrekinn
Scorpius
Þetta stjörnumerki er á móti Óríon. Bjartasta stjarna þess er Antares, sól með appelsínurautt skin. Nafnið merkir "keppinautur Mars", og vísar til litarins sem svipar til rauðu plánetunnar.
Bogmaðurinn
Sagittarius
Eitt tilkomumesta stjörnumerkið, við miðju Vetrarbrautarinnar á stjörnum prýddasta hluta himinsins. Ekki er auðvelt að bera kennsl á bogmanninn. Besta leiðin er að byrja frá sporðdrekanum og þá verða stjörnurnar sex í boga bogmannsins sýnilegar.
Steingeitin
Capricornus
Ekki mjög bjart stjörnumerki en eitt þeirra elstu og ávallt tengt vatni og sjó. Á tímum Babýlóníumanna var þetta merki kallað geitarfiskurinn og Forn-Grikkir litu einnig á það sem einkennilega samsetta geit með sporð.
Vatnsberinn
Aquarius
Vatnsberinn er stórt en dauft stjörnumerki á suðurhimni. Vatnsberinn er hluti af dýrahringnum, merkjunum tólf sem dreifast jafnt hringinn í kringum sólkerfið. Þau hafa verið notuð frá örófi alda til að skipta árinu niður í tólf hluta og mynda þess vegna grundvöll stjörnuspákorta.
Fiskarnir
Pisces
Þetta stjörnumerki er að finna á frekar óafmörkuðum hluta himinsins ásamt öðrum stjörnumerkjum sem tengjast vatni, svo sem steingeitinni og vatnsberanum.
MYSTAR - Global Star Registry AB, Box 3175, 10363 Stockholm, Sweden - Email
support@globalstarregistry.com
Name a Star USA & Canada
Name a Star UK
Einen Stern benennen
Baptisez une ètoile
Regale una estrella
Regala una stella
Name a Star Greece
Döp en stjärna
Navngi en stjerne
Gefðu stjörnu á himninum
Our policy
Blog