Stjörnupakki
Stjörnupakki - dýrahringurinn
Stjörnupakki - Óríon
The Star Kit - Twin Star
Eins og stjörnupakkinn en stjarnan verður í nágrenni stjörnumerkisins Óríons.
Óríon, sem einnig er kallaður Veiðimaðurinn, sést frá október og út mars á báðum jarðarhvelum. Í huga flestra stjörnuskoðara er Óríon án efa áhrifamesta stjörnumerki himinsins. Mikill fjöldi bjartra stjarna þess og sérstök þyrping stjarnanna þriggja sem mynda beltið gera að verkum að auðvelt er að finna það á vetrarhimninum. Stjörnuskoðarar við miðbaug jarðar geta séð stjörnumerkið ferðast gegnum hvirfilpunktinn; stjörnurnar í beltinu hafa um 0 gráðu stjörnubreidd. Staðsetning Óríons er nálægt miðbaug Vetrarbrautarinnar. Óríon er nógu nálægt Vetrarbrautinni til að áhugavert sé að skoða það jafnvel með sjónauka sem ekki er mjög öflugur.
Óríon, Veiðimaðurinn mikli eða Stríðsmaðurinn, var svo stór risi að hann gat vaðið yfir öll höf. Fyrsta hjónabandi hans lauk þegar grobbið í konu hans varð til þess að hún var gerð útlæg og send til undirheimanna. Afbrýðisamur faðir sló hann blindu þegar hann varð ástfanginn af grískri prinsessu, en hann fékk sjónina á ný þegar véfrétt sagði honum að horfa í sólina við dögun. Þegar hann sá Áróru, gyðju dögunarinnar, urðu þau ástfangin. Allt gekk vel þar til Óríon var stunginn af sporðdreka, þá veiktist hann og dó. Í heiðursskyni og vörn gegn óvini sínum rís hann í austri um leið og óvinur hans, sporðdrekinn, sest í vestri. Óríon sést aldrei á sama tíma og sporðdrekinn. Óríon var notað til að segja til um árstíðirnar og ef Óríon kom fram á miðnætti þýddi það að tími var kominn til að tína vínberin, ef það kom fram að morgni þýddi það upphaf sumarsins og ef það kom fram að kvöldi var kominn vetur.
MYSTAR - Global Star Registry AB, Box 3175, 10363 Stockholm, Sweden - Email
support@globalstarregistry.com
Name a Star USA & Canada
Name a Star UK
Einen Stern benennen
Baptisez une ètoile
Regale una estrella
Regala una stella
Name a Star Greece
Döp en stjärna
Navngi en stjerne
Gefðu stjörnu á himninum
Our policy
Blog