Vinur minn heldur upp á sérstakan áfanga á morgun. Hvað á ég að gera?
Þegar þú hefur fyllt út pöntunina færðu sent í tölvupósti bréf með persónulegri staðfestingu og hamingjuóskum þar sem einnig kemur fram nafn stjörnunnar. Prentaðu út þetta bréf og gefðu vini þínum það á morgun til að sýna honum hvað er í vændum. Áætlaður sendingartími með alþjóðlegum forgangsflugpósti er 4-7 virkir dagar eða, ef þú óskar þess, 1-2 virkir dagar með alþjóðlegu UPS-hraðsendingarþjónustunni.
Er boðið upp á einhvers konar tryggingu fyrir að varan sé í lagi?
Ef þú ert af einhverjum sökum óánægð/ur með einhverja eða allar vörurnar sem þú færð geturðu skilað þeim gegn endurgreiðslu, að því tilskildu að þeim sé skilað innan 7 virkra daga frá móttöku. Kostnaður við skil á vörum gegn endurgjaldi eða skiptum fellur á þig, nema þegar um er að ræða gallaðar, skemmdar eða rangar vörur. Við mælum með notkun ábyrgðarpósts eða skrásettrar afhendingarþjónustu við skil á vörum. Við gerum okkar besta til að endurnýja skemmdar eða gallaðar vörur en ef ekki er hægt að endurnýja þær ber okkur eingöngu skylda til að endurgreiða þér að fullu þá upphæð sem þú greiddir okkur.
Fara peningarnir til einhverra góðgerðarsamtaka? Ef svo er, til hverra?
5% hagnaðarins fara til hjálparstofnana. Þau fara til UNICEF, alþjóðlegra samtaka sem vinna að barnahjálp. Þau sjá börnum fyrir góðri heilsugæslu, hreinu vatni, viðunandi hreinlætisaðstæðum, grunnmenntun og öryggi gegn ofbeldi og líkamsárásum. UNICEF telur að það sé á ábyrgð allra að tryggja öryggi barna. Við styrkjum einnig samtökin LÆKNAR ÁN LANDAMÆRA, sem eru góðgerðasamtök sem aðstoða við stórslys, farsóttir og náttúruhamfarir. Þau aðstoða einnig fólk sem stríðir við heilsufarsvandamál vegna félagslegrar eða landfræðilegrar einangrunar.
Ég er með spurningu varðandi pöntunina mína. Hvern á ég að tala við?
Vinsamlegast sendu allar fyrirspurnir á support@globalstarregistry.com, og við höfum samband eins fljótt og auðið er.
Hvaða greiðslumáta bjóðið þið upp á?
Við tökum bæði Visa og MasterCard. Allar pantanir fara í gegnum öryggisnetþjón sem notar VeriSign SSL. Allar pantanir verður að greiða fyrirfram. Við bjóðum því miður ekki upp á póstkröfur.
Bjóðið þið upp á magnafslátt?
Já, við bjóðum upp á magnafslátt. Sérhver stjörnupakki felur í sér einstaka stjörnu. Ef þú ert með ákveðin áform í huga skaltu hafa samband við support@globalstarregistry.com og veita þar nánari upplýsingar.
Hvað gerir Global Star Registry?
Það er nýstárleg og táknræn gjöf að gefa stjörnu sem nefnd er í höfuðið á einhverjum sem þér er kær. Global Star Registry býður upp á þá þjónustu að gefa raunverulegum stjörnum nafn. Stjörnurnar sem gefið er nafn gegnum Global Star Registry eru ekki viðurkenndar af opinberum stofnunum þótt þær séu skráðar í bók sem skrásett er hjá útgáfuréttarskrifstofu Bandaríkja Norður-Ameríku. Sérhver stjarna verður aðeins skrásett einu sinni. Ekki er hægt að eiga stjörnur í raun og veru þar sem enginn (eða allir, eftir því hvernig á það er litið) hefur eignarrétt yfir þeim. Stjörnur eru í grundvallaratriðum hnettir úr sjóðandi gasi í billjón kílómetra fjarlægð, þannig að eignarhald á þeim er varla raunhæfur möguleiki hvort sem er!
Verður stjarnan eingöngu mín?
Algjörlega. Sérhver stjarna verður aðeins skrásett einu sinni. Nafn stjörnunnar verður vistað í skráningargeymslu og skrásett í bók, sem er skrásett hjá útgáfuréttarskrifstofu Bandaríkja Norður-Ameríku.
Hvað er stjarna?
Stjörnur eru gríðarstórir hnettir úr glóandi heitum gastegundum. Sólin okkar er stjarna. Hún er bara venjuleg stjarna, hvorki sú stærsta né sú bjartasta. En sólin er sú stjarna sem er næst Jörðinni, plánetunni okkar. Jörðin er hluti af hópi plánetna, tungla og halastjarna sem tilheyra sólinni og kallast einu nafni sólkerfið okkar. Allar hinar stjörnurnar sem við sjáum á himninum eru miklu lengra í burtu frá Jörðinni. Fólk byrjaði fyrir löngu að gefa björtustu stjörnum himinsins nöfn og læra hvar og hvenær ætti að leita að þeim. Það nefndi líka stjörnumerkin, hópa stjarna sem virðast mynda mynstur á himninum. Oftast voru þessi stjörnumerki nefnd eftir guðum, hetjum eða dýrum.
Er svarthol stjarna?
Sumar stjörnur eru risavaxnar í samanburði við aðrar. Þegar þess háttar risastjörnur kólna og falla saman breytast þær í afar sérstakt fyrirbæri. Innviðir stjörnunnar þjappast og pressast saman undan gríðarlegri þyngd gastegundanna sem falla saman. Þyngdaraflið heldur áfram að þrýsta saman kjarnanum þangað til stjarnan virðist hverfa. Hún verður að svartholi. Allt það sem kemur of nálægt svartholi - jafnvel ljósgeislar - sogast inn í það og kemst aldrei þaðan út aftur. Þess vegna eru svarthol ósýnileg. Samt sem áður eru vísindamenn þess fullvissir að hafa staðsett nokkur svarthol í alheiminum.
MYSTAR - Global Star Registry AB, Box 3175, 10363 Stockholm, Sweden - Email support@globalstarregistry.com
Our policy Blog